Stofuspjallið
Stofuspjallið er hlaðvarp á vegum Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem gefur einstaka innsýn í fólkið sem stendur á bakvið fyrirtækin í Hafnarfirði. Við heyrum heillandi sögur, kynnumst hugmyndafræði og metnaði eigenda og skoðum spennandi starfsemi fyrirtækjanna. Vertu með og uppgötvaðu kraftinn og sköpunargleðina sem gerir Hafnarfjörð sérstakan.
Episodes

Tuesday Jun 03, 2025

Thursday Apr 10, 2025
Thursday Apr 10, 2025
Í Stofuspjallinu á þessu sinni fáum við til okkar magnaðan gest sem hefur haft djúpstæð áhrif á kaffimenningu Íslendinga. Guðmundur Halldórsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Te & Kaffi, sem hefur verið leiðandi afl á markaði allt frá upphafi, allt frá fyrstu kaffihúsunum til þess að setja gæðakaffi á dagskrá landsmanna. Te & kaffi var valið fyrirtæki ársins í Hafnarfiði árið 2024 og þessu viðtali ræðum við frumkvöðlastarfið, vegferðina í að byggja upp eitt ástsælasta vörumerki landsins, förum yfir hvernig allt byrjaði, áskoranirnar sem fylgja vegferðinni, og hvað það er sem hefur haldið Guðmundi drifnum, skapandi og jarðbundnum í gegnum árin.

Friday Feb 28, 2025
Friday Feb 28, 2025
Dalakofinn – fjölskylduarfleifð í 50 ár
Dalakofinn var stofnaður af föður systranna Sjafnar og Guðrúnar Sæmundsdætra, sem tóku síðar við rekstrinum. Nú, eftir áratugi í þjónustu við Hafnfirðinga, hafa þær lokað versluninni og líta um öxl. Í þessu viðtali deila þær sögunni af Dalakofanum, breytingunum í verslunarrekstri og minningum sem þær munu aldrei gleyma.

Tuesday Jan 21, 2025
Tuesday Jan 21, 2025
Gestur fyrsta þáttarins er nýr bæjarstjóri í Hafnarfirði, skólastjórinn sem aldrei hefur starfað sem kennari. Valdimar deilir sögu sinni, helstu áherslum sínum sem bæjarstjóri og spennandi framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð.

Tuesday Jan 21, 2025
Tuesday Jan 21, 2025
Sérstakur kynningarþáttum um hlaðvarp Markaðsstofu Hafnarfjarðar. Gestur þáttarins er Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofunnar. Þóra Hrund fer yfir dagskrá vetrarins sem óhætt að segja sé einkar spennandi og glæsileg.